07.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1309 í B-deild Alþingistíðinda. (1583)

45. mál, stofnun lagaskóla á Íslandi

Jón Þorkelsson:

Það er misskilningur hjá háttv. þm. Dal. (B. J.) að vilja ekki að nefnd sé skipuð í mál þetta. Er miskilningur þessi víst sprottinn af því, að háttv. þm. kom ekki á flokksfund í morgun og veit því ekki hvað þar hefir gerst, en eg verð að halda því fram, að það sem ráðið er, gangi fram.