06.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (1649)

66. mál, gjöld til holræsa og gangstétta í Reykjavík

Framsm. (Magnús Blöndahl):

Efri deild hefir gert nokkrar breytingar á frumv. þessu, sem aðallega eru fólgnar í því, að feldar hafa verið í burtu 5. og 8. gr. sem voru í frumv., er það fór héðan úr deildinni.

Það er enginn efi á því, að þetta er misskilning einum að kenna. En þótt nefnd sú, er hafði mál þetta áður til meðferðar hér í deildinni, verði að telja breytingar þær, er háttv. Ed. hefir gert á frumvarpinu í alla staði óréttmætar og óhyggilegar, leyfir nefndin sér að ráða hinni háttv. deild til að samþykkja frv., eins og það nú liggur fyrir.