25.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1365 í B-deild Alþingistíðinda. (1667)

15. mál, verslunarbækur

Flutnm. (Jón Ólafsson); Herra forseti! Þetta litla frumv. er fram komið af því, að á síðasta þingi láðist að setja hegningarákvæði inn í lögin um verzlunarbækur. Það má vera, að fleiri vilji fá breytingar á lögunum, og skal eg því leyfa mér að stinga upp á 3 manna nefnd í málið.