25.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1366 í B-deild Alþingistíðinda. (1669)

15. mál, verslunarbækur

Sigurður Gunnarsson:

Eg tók svo eftir, að háttv. flutningsm. (J. Ól.) stingi uppá 3 manna nefnd. Það væri að vísu nægilegt í þetta mál eitt út af fyrir sig. En nú eru á ferðinni viðskiftalagafrumv. og ef til vill fleiri frv. líks eðlis, og því skal eg leyfa mér að stinga upp á 5 manna nefnd, í því skyni, að til hennar yrði vísað skyldum málum.