29.04.1911
Sameinað þing: 27. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (17)
4. mál, styrkveiting úr landssjóði til búnaðarfélaga
Björn Þorláksson:
Eg á brtill. við þessa þingsál.till. á þingskj. 803. Hún er við 1. gr. í A. 1. gr. hljóðar svo: „Að 8 menn eða fleiri í félagi hverju hafi á næsta ári á undan því, er styrkurinn er veittur, unnið að jarðyrkjustörfum þeim, er til greina eru tekin við styrkveitingu, samkv. eftirfylgjandi reglum, að minsta kosti 12 dagsverk hver þeirra“. Mín brtill. fer fram á að minsta tala manna, sem þarf til að mynda félag til að fá styrk, sé ekki 8 heldur einungis 5. Eg hefi komið fram með þessa brtill. vegna reynslu þeirrar sem eg hefi um 2 hreppa á Austurlandi, hreppinn sem eg bý í, og næsta hrepp. Það hagar svo til í öðrum hreppnum, að ómögulegt er að mynda félagsskap til jarðabóta til þess að geta fengið styrk, því að búendur eru svo fáir, ekki nema 910, en sumir þeirra, alt að helmingur, frábitnir öllum slíkum félagsskap. Aftur á móti eru nokkrir í mínum hrepp, sem stunda jarðabætur, en þegar 8 menn þarf til að mynda félagsskap, er styrks geti orðið aðnjótandi, þá geta 56 menn, þótt þeir vilji, ekki myndað félag til að fá styrk, meðan þetta ákvæði er. Það væri ef til vill hægt að segja, að þeir gætu myndað félag með mönnum úr næstu sveit, en á því eru ýmsir annmarkar, t. d. vond og erfið ferðalög milli sveitanna, og svo setja búnaðarfélög sveitanna mismunandi reglur, sem koma í bága hvorar við aðra. Fyrir þá sök veit eg, að menn úr næsta hreppi við mig hafa ekki viljað segjast í lög með okkur. Þeim hefir þótt það of erfitt. Eg verð að ætla, að tilgangurinn með þessum landsjóðsstyrk sé sá, að örfa menn til jarðabóta, og eg ætla, að honum verði bezt náð með því, að ákveða tölu þeirra manna, sem þarf til að mynda búnaðarfélag, er styrks geti notið, sem lægsta, og miða þá við fámennustu hreppana, svo að allir geti komist að. Sé það ekki gert, liggur beint við, að mörgum mönnum verði alveg synjað um að verða styrks þessa aðnjótandi. Það getur komið fyrir, og hefir oft komið fyrir, að fáir menn í félagi, 4 5, vinni miklu meira heldur en tvöþreföld tala manna í öðru félagi.
Eg skal svo ekki teygja tímann með fleiri orðum, en að eins geta þess, að við síðari umr. í neðri deild gerði eg brtill. samhljóða þessari við þingsályktunartillöguna. Hún var þá samþykt, og fór til efri deildar, en þar var hún feld burt. Eg vonast til þeirrar sanngirni af sameinuðu þingi, að það taki tillögu mína til greina, og samþykki hana.