04.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1376 í B-deild Alþingistíðinda. (1702)
36. mál, löggilding verslunarstaða
Flutningsm. (Jón Jónsson 1. þm. N.-Múl.):
Þetta frumv. er fram komið samkvæmt beiðni úr hlutaðeigandi héraði. Höfn sú, sem hér er farið fram á að löggilda, er í Vopnafirði, ekki mjög langt frá verzlunarstaðnum, en þó æðispöl, því að þar er fjörður á milli, Nýpsfjörður, og tangi á milli fjarðanna. Það sem mælir með því, að löggilda þennan stað, er það, að hér er um góða höfn að ræða, gott útræði og síldarpláss hið bezta. Þess vegna eru þar oft útlendingar á sumrum, og líkindi til, að aðsóknin aukist. Ennfremur skal eg benda á, að þetta er rétt í leiðinni, ef sími yrði lagður frá Vopnafirði til Bakkafjarðar og Þórshafnar. Það mætti því búast við, að sími yrði hér töluvert notaður í framtíðinni, ef hér yrði verzlunarstaður og þorp myndaðist.
Eg skal ekki fjölyrða um þetta meira. Eg skil ekki, að nokkur verði á móti frumv., því að vant hefir verið að leyfa slíkar löggildingar orðalaust. En með því að fleiri löggildingafrv. eru á ferðinni, vænti eg, að þeim verði öllum vísað í eina nefnd og býst við uppástungu um það úr annari átt.