06.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1377 í B-deild Alþingistíðinda. (1705)

40. mál, Kvíabryggja í Eyrarsveit

Flutningsm. (Sigurður Gunnarsson); Eg hefi flutt frumv. þetta inn á þing, samkvæmt eindreginni ósk kjósenda minna. Eg þarf ekki að fara mörgum orðum um frv., vil að eins geta þess, að höfn sú, sem hér er um að ræða, er góð; dýpið er 5—7 fet, sandbotn og góð innsigling.

Með því að nefnd hefir verið kosin í öðru löggildingarfrumv., vil eg leyfa mér að stinga upp á, að þessu frumv. sé einnig vísað til hennar.