17.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1379 í B-deild Alþingistíðinda. (1713)

99. mál, Kirkjufellsvogur

Flutnm. (Sig. Gunnarsson):

Eg skal ekki fara mörgum orðum um þetta mál. Það er ekki nema einn maður hér í Reykjavik, sem hefir beðið mig að flytja það. Eg vil gera það, þótt málið sé eflaust ekkert áhugamál kjósenda minna. Vonast eg til að deildin sýni því sama sóma og öðrum málum, sem eru flutt hér af sama tagi, og vísi því til löggildinganefndarinnar.