10.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1381 í B-deild Alþingistíðinda. (1721)

113. mál, löggilding verslunarstaða

Framsögum. (Bjarni Jónsson):

Nefndin hefir ekki séð ástæðu til þess, að koma fram með breytingartillögur. Vil eg leyfa mér að biðja háttv. deild að samþykkja tillögurnar á þgskj. 249, og um leið vil eg mælast til þess, að háttv. forseti leiðrétti tölur þær, er slæðst hafa inn í þær og eru prentvillur.