28.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1406 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)
63. mál, Húsavík með Þorvaldsstöðum
Hálfdan Guðjónsson:
Eg vil að eins tala örfá orð viðvíkjandi kúgildasölunni. Mér virðist varhugavert, ef sú stefna væri tekin upp, að selja jarðir með ákveðinni kúgildatölu, án þess að þau fylgi með. Venjulega er einmitt mikið tillit tekið til kúgildanna, þegar jarðir eru metnar. Hér er að ræða um 36 ær, leigan eftir þær er naumast of hátt sett nál. 80 kr. og má af því sjá, hvað mikið verð jarðarinnar ætti að hækka, ef kúgildin fylgdu með. Háttv. þm.
S.-Þing. (P. J.) tók fram, að presturinn hefði komið upp með þetta, en eg verð að álíta það óheppilegt frá sjálfs hans sjónarmiði, því honum væri betra að fá nokkru meiri peningaupphæð árlega; og það get eg ekki tekið til greina, að hann eigi nú bágt með að skila af sér kúgildunum, því að einhverntíma hlýtur að því að koma, að hann eða bú hans verði að gera það. Eg vildi að eins benda á, að þetta gæti verið varhugavert.