02.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1472 í B-deild Alþingistíðinda. (1854)

22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands

Forseti:

Deildin hefir áður felt, að setja nefnd í þetta mál, og væri því dálítið hjákátlegt, ef hún vísaði máli til nefndar, sem hún hefir felt að setja nefnd í daginn áður. En vitanlega hefir deildin fulla heimild til að sjá sig um hönd í þessu, með því að vísa málinu til einhverrar nefndar eða samþykkja að setja sérstaka nefnd í það nú, ef henni sýnist svo.