13.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (187)

10. mál, rannsókn bankamálsins

Steingrímur Jónsson:

Eg ætla að eins að leyfa mér að skora á háttv. forseta að láta ekki ganga til atkvæða um þessa tillögu nú þegar, því þær ástæður, er færðar hafa verið henni, eru með öllu óviðkomandi deildinni.