27.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1554 í B-deild Alþingistíðinda. (1920)

21. mál, búpeningsskoðun og heyásetning

Flutningsm. (Sigurður Sigurðsson):

Eins og eg tók fram fyrir skömmu í sambandi við frumvarpið um heyforðabúr og heyásetningseftirlit á þgskj. 39, þá er þar að eins að ræða um heimildarlög. En þetta frumvarp er annars eðlis. Það er í raun og veru endurskoðun á núgildandi horfellislögum. Eg skal að svo stöddu ekki fara fleiri orðum um þetta mál, en óska að því verði vísað til landbúnaðarnefndarinnar.