14.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1576 í B-deild Alþingistíðinda. (1940)
77. mál, horfellir á skepnum
Jón Jónsson (1. þm. S.-Múl.):
Eg vil geta þess, að mér geðjast ekki að þessu frv. Mér finst lýsa sér í því hin sama tilhneiging þingmanna, sem nú er æði mikið farin að færast í vöxt: að beina löggjöfinni inn á það svið, sem hún á ekki að komast, en það er að hefta athafnafrelsi einstaklinganna. Sú leið er mjög varhugaverð fyrir löggjafarvaldið.
Annars vildi eg benda á, að ef svo fer, að frv. verður samþykt, þá verður að breyta niðurlagi efnisgreinarinnar. Það er ekki rétt að veita skoðunarmönnunum svo mikið vald, sem þar er gert. Það er engin trygging fyrir því, að þeir séu starfi sínu vaxnir, né heldur að þeir misbeiti ekki valdi sínu til að ná sér niðri. Þetta vil eg benda á til þess að úr verði bætt.