24.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1594 í B-deild Alþingistíðinda. (1959)

139. mál, útrýming fjárkláðans

Framsm. (Hálfdan Guðjónsson):

Eins og eg sagði áðan, kom brtill. þessi mér á óvart, enda hefi eg alls ekki séð hana, en hinsvegar var mér kunnugt um, að slík tillaga kynni að koma frá þessum háttv. þm. Vil eg af þessum ástæðum, til þess að till. verði athuguð, leyfa mér að fara þess á leyt við háttv. forseta að hann taki málið út af dagskrá.