13.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í B-deild Alþingistíðinda. (196)

10. mál, rannsókn bankamálsins

Kristján Jónsson:

Eg vildi leyfa mér að segja rétt fáein orð, af því að ófriður þessi stafar á vissan hátt af mér. Eg hefi verið kosinn fjórum sinnum gæzlustjóri hér í þessari háttvirtu deild. Síðast fyrir tveim árum. Þegar nú landsstjórnin vill ekki leyfa mér að gegna starfinu í bankanum, sem deildin hefir falið mér, þá verð eg vissulega að spyrja:

Er eg gæzlustjóri eða ekki?

Eg heimta að deildin segi til, hvort eg er hennar gæzlustjóri eða ekki.