11.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (203)

75. mál, stjórnarskrármálið

Lárus H. Bjarnason:

Eg er öldungis sammála háttv. þingm. Ísafj.kaupstaðar um að setja þessa nefnd. En eg er honum ósamdóma um það, að sjá eftir því, að þessi stjórn, sem nú er, hafi ekki undirbúið málið. Hana hefir algerlega brostið vilja og getu til að undirbúa bæði þetta mál og önnur mál, sem hafa verið lögð fyrir þingið af hennar hendi.