29.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1696 í B-deild Alþingistíðinda. (2051)

26. mál, skógrækt

Bjarni Jónsson:

Eg vil leyfa mér hér með að skora á háttv. deild að fella frv. þetta, þar eð það hefir engar aðrar breytingar á skógræktarlögunum í för með sér en þær, að skógræktarstjóranum megi segja upp stöðu hans með ½ árs fyrirvara og að laun hans skuli færð niður um 600 kr., þegar nýr maður tekur við, en alt annað til skemda.