20.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1736 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)

9. mál, prentsmiðjur

Framsögum. meiri hl. (Bjarni Jónsson):

Háttv. þingm. munu hafa séð á nefndarálitinu, að nefndin hefir lagt til með því, að frv. það, er hér er um að ræða, fái framgang með þeim breytingum, sem þar er farið fram á, og hefir hún orðið sammála um aðalatriði málsins.

Eg vil mælast til þess, að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og mun eg þá gera grein fyrir brtill. og ágreiningi þeim, er orðið hefir í nefndinni.