10.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1797 í B-deild Alþingistíðinda. (2150)

33. mál, borgarstjórakosning

Framsm. (Magnús Blöndahl):

Nefnd sú, er haft hefir mál þetta til meðferðar, hefir komið fram með breytingartillögu á þgskj. 499 og 2 aðrar breytingartill. eru á þgskj. 521 og 523. En þar sem þetta er 1. umr., skal eg ekki fjölyrða um málið í þetta sinn. Vil að eins mælast til að háttv. deild lofi málinu að ganga til 2. umr.