10.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (2219)
65. mál, skipun prestakalla
Sigurður Sigurðsson:
Á síðasta þingi var eg samflutningsmaður háttv. þm. Snæf. (S. G.) að frumvarpi svipuðu þessu, en nefndin, sem þá var skipuð í málið, klofnaði. Var þá engin von um, að frumv. kæmist í gegnum þingið, en augsýnilegt, að ótal tillögur mundu koma á þinginu um að skifta prestaköllum og alt þannig komast í glundroða. Eg hygg nú, að afstaða deildarinnar sé óbreytt í þessu máli, síðan á síðasta þingi, og undrar mig því, að háttv. þm. Snæf. (S. G.) skuli flytja þetta frumv. Það mun áreiðanlega reynast árangurslaust. En ef svo ólíklega kynni að fara, að samþykt yrði að láta frumv. ganga til 2. umræðu, þá er eg siðferðislega skyldugur til að verða við áskorun þeirri, sem eg hefi fengið úr kjördæmi mínu, um að Selvogur sé gerður að sérstöku prestakalli, og koma fram með breyt.till. þar að lútandi.