30.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1853 í B-deild Alþingistíðinda. (2228)

119. mál, tollur af póstsendingum

Flutningsm. (Björn Kristjánsson):

Það er sama að segja um þetta mál, sem það er næst var á undan á dagskránni (farmgjald af aðfluttum vörum), að það hefir komið of seint inn á þing. Eg óska, að því verði einnig vísað til skattalaganefndarinnar og beint þaðan til 2. umr.