08.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1932 í B-deild Alþingistíðinda. (2326)

50. mál, landsbankalög

Bjarni Jónsson:

Eg vil leyfa mér að leggja til, að máli þessu verði vísað til peningamálanefndarinnar. Eg get ei fallist á ástæður háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) og 1. þm. Eyf. (H. H.) fyrir því, að vísa málinu til bankarannsóknarnefndarinnar. Jafnvel þó að alt það, sem háttv. 1. þm Eyf. gat um tilganginn með frv. væri rétt, á það samt heima hjá peningamálanefndinni, en hinni nefndinni er heimilt að taka það tillit til frv., sem henni þykir þurfa. Frumv. er útbýtt, og allir sjá, hvað í því felst. Báðar nefndirnar geta tekið það til meðferðar, en deildin hlýtur að vísa því til peningamálanefndarinnar.