01.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 496 í B-deild Alþingistíðinda. (236)

125. mál, eiðar og drengskaparorð

Framsögum. Ari Jónsson:

Nefndin ræður deildinni til að samþykkja frumv. eins og það er komið frá neðri deild. Breytingin, sem hefir verið gerð í neðri deild, er að eins innifalin í lítilfjörlegri breytingu á orðalagi eiðstafsins í 2. gr. frumv.