21.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1986 í B-deild Alþingistíðinda. (2396)
98. mál, kjördæmaskipun
Flutningsm. (Jón Þorkelsson):
Þetta frumv. stendur í nánu sambandi við þær breytingar, sem væntanlega verða gerðar á stjórnarskránni og komnar eru fram, sumar frá stjórnarskrárnefndinni, en sumar ókomnar þeirra manna, sem ágreiningsatriði hafa gert. Frumv. þetta stendur einnig í sambandi við aðra skipun á þinginu, sem eg legg til, að gerð verði. Aðrir nefndarmenn leggja til, að kosið verði til hvorrar deildar sér, til efri deildar 15 menn kjörnir með hlutfallskosningu um land alt. Þetta þykir mér fremur margbrotið auk annara annmarka. Annarstaðar á allfjölmennum þingum, t. d. í Finnlandi og Noregi, er látið nægja að kjósa í senn á alt þingið, og skipi svo þingið í deildir eða nefndir. Þar með er settur sá hemill á þingstarfið, sem nægja þykir. Þetta frumv. byggist á því, að eg álít, að kjósa beri alt þingið í einu lagi, þingmenn alla, og sameinað þing velji síðan efri deild. Að öðru leyti skal eg ekki víkja meira að stjórnarskránni eða öðru því, sem þar að lýtur; það getur komið til greina síðar.
Við samning þessa frumv. höfum við farið sem næst fólkstölu 1908. (Jón Jónsson, 1. þm. S.-Múl.: Ekki nálægt því). Jú, eg hefi hér fyrir mér uppskrifaðan lista, sem sýnir kjósendafjöldann. Það var helzt vafi á um, hvort auka bæri við þingmönnum í Húnavatns-, Hegraness- og Vaðlaþingum, en frá því var þó horfið.
Að öðru leyti býst eg við umræðum um málið og kann eg þá að segja fleira. Nú læt eg þetta nægja. Sökum þess, að þetta frumv. er nákomið stjórnarskrármálinu, legg eg til, að því verði vísað til nefndarinnar í því, hún er svo margmenn, að ekki er hætt við, að frumv. verði ekki rækilega íhugað.