27.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2021 í B-deild Alþingistíðinda. (2450)

141. mál, einkaréttur landssjóðs á aðfluttum vörum

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Eg býst við, að það sé árangurslaust að bera fram brtill. við till. á þgskj. 706, þar sem fjölmenn nefnd hefir stungið upp á að skipa skuli 5 manna nefnd í þessi 2 mál, sem þó eru alveg óskyld. Eg vildi því skora á nefndina að taka tillögu sína aftur. Það liggur í augum uppi, að erfitt verður að fá hæfa menn í þessa nefnd, og mín skoðun er sú, að betra væri að kjósa tvær þriggja manna nefndir, held að þær muni vinna betur en þessi eina, sem nefndin ætlast til að kosin verði.