28.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2027 í B-deild Alþingistíðinda. (2470)

19. mál, Landsbankarannsókn

Jón Þorkelsson:

Þótt nefnd hafi verið skipuð í Ed., þá er það engin ástæða til þess, að Nd. skipi ekki nefnd til þess að rannsaka líka þetta mál. Fjárlaganefndir eru líka oft skipaðar í báðum deildum á sama tíma. Nefndirnar geta unnið samtímis og undirbúið málið í félagi sín á milli. Það horfir einungis til þess að fá málið betur rannsakað, að Nd. skipi einnig nefnd í það.