24.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2054 í B-deild Alþingistíðinda. (2495)

16. mál, innsetning gæslustjóra Landsbankans

Framsögumaður meiri hl. (Jón Ólafsson):

Herra forseti! Eg vil leyfa mér að koma fram með dálitla athugasemd.

Háttv. framsögum. minni hl. (B. Sv.) talaði um, að nefndin mundi leggja málið fram, undir eins og rannsókninni væri lokið. En að rannsaka annað eins mál og þetta er ekki hægt á einu þingi, að minsta kosti ekki til hlítar. Nefndin mun því leggja fram hvern kafla, þegar honum er lokið og reyna að skýra þá hlið málsins sem auðið er.