09.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2058 í B-deild Alþingistíðinda. (2505)

53. mál, rannsókn símaleiða

Hannes Hafstein:

Eg held eg megi fullyrða, að símaleið þessi hafi verið rannsökuð um leið og Ísafjarðarálman. Eg vildi því leyfa mér að spyrja hv. flutnm. (Sk. Th.), hvort honum hafi verið ókunnugt um þá rannsókn, eða hvort hann telur hana ófullnægjandi og þess vegna óskar þess, að ný rannsókn fari fram.