09.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2058 í B-deild Alþingistíðinda. (2506)

53. mál, rannsókn símaleiða

Flutningsm. (Skúli Thoroddsen):

Eg skal geta þess, að eg í þessu máli hefi að eins ósk þingmálafundar við að styðjast. En ef hv. 1. þm. Eyf, (H. H.) man það glögt, að símaleið þessi hafi verið rannsökuð, þá er auðvitað, að ekki verður gerð ný rannsókn. En ef svo er ekki, þá sé eg ei, að neitt geri til, þótt þessi þingsályktunartillaga sé samþykt.