11.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2069 í B-deild Alþingistíðinda. (2528)

56. mál, brúarstæði á Langadalsá

Flutningsmaður (Skúli Thoroddsen):

Eg get ekki svarað fyrirspurn hins háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.). Mér er ókunnugt um, hvort leitað hefir verið til stjórnarinnar í þessu máli; hins vegar get eg ekki séð annað, en að rétt leið hafi verið valin í þessu máli. Tillagan gefur að eins kröfunni meiri þunga og vona eg, að hin háttv. deild veiti henni fylgi sitt.