03.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2083 í B-deild Alþingistíðinda. (2555)
159. mál, millilandaferðir
Flutningsm. (Sigurður Gunnarsson):
Eg og háttv. þm. N. Ísf. (Sk. Th.) höfum leyft okkur að koma fram með tillögu um, að millilandaskipin komi við í Bolungarvík í marz og september. Það er bygt á því, að skipin fara ávalt fram hjá Bolungarvík og enginn krókur er að koma þar við, en verzlun er þar mikil og margt fólk. Kaupmenn þar verða því ávalt að sækja vörur sínar inn á Ísafjörð á eftir og er það töluverður bagi fyrir þá.
2. liður tillögu okkar fer fram á, að millilandaskipin komi eins oft á ári í Stykkishólm eins og 1910. Nú er orðin stór breyting á því, sem þá var. Nú koma skip frá sameinaða gufuskipafélaginu þangað ekki nema 6 sinnum, en 1910 komu þau þangað 13 sinnum. Þetta er niðurfærsla meir en um helming og veit eg ekki hvað því veldur. Það hefir verið borið fyrir, að það væri af því að ekki væri flutt eins mikið með þessum skipum og skipum Thorefélagsins. En það ætti alls ekki að vera næg ástæða, þar sem þetta félag nýtur opinbers styrks. En sú saga hefir gengið, að þetta eigi rót sína að rekja til þess, að brytinn á »Botníu« var sektaður um 50 kr. síðastliðið sumar fyrir ólöglega vínsölu, og þá er sagt, að Aasberg, skipstjórinn á »Botníu«, sem annars er mörgum að góðu kunnur, hafi hótað því, að það skyldi koma niður á þessum stað. Eg hefi bréf í höndum frá einum formanni félagsins, sameinaða gufuskipafélagsins, sem er svar upp á fyrirspurn, sem afgreiðslumaður þess í Stykkishólmi gerði út af þessu. Að vísu er það ekki sagt í bréfinu berum orðum, að þessi sekt sé aðalástæðan, en það má lesa það milli línanna. En nú er vonandi, að félagið verði ekki látið framvegis komast upp með slíkt, og þoli mönnum ekki lög.
Viðvíkjandi því, sem háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) sagði, að stjórnin mundi eins taka tillögurnar til greina, þótt hver þingmaður privat ætti tal um þetta við stjórnina, þá er eg ekki þar á sama máli. Þingsályktunartillaga hefir ólíkt meiri kraft, þegar hún kemur frá þingdeildinni en málaleitanir frá einstökum mönnum eða héruðum. Annað mál er það, að naumast má búast við, að allar tillögurnar verði teknar til greina, eins og t. d. tillögurnar frá háttv. 1. þm. N. Múl. (J. J.) því þær ganga nokkuð langt, sérstaklega 4. liðurinn um, að skipin komi 8 sinnum á Vopnafjörð, en eg mun þó ekki sem nefndarmaður verða á móti þeim lið.
Þegar hér var komið umræðunum gat forseti þess, að komin væri fram rökstudd dagskrá frá 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) og 2. þm. Árn. (S. S.) svo látandi:
»Í trausti þess, að stjórnin taki alt það tillit, sem hún sér fært til óska þingmanna, sem þeir láta í ljósi við hana um ferðir póstskipanna, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.«