05.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2102 í B-deild Alþingistíðinda. (2587)
124. mál, stöðulögin
Flutningsm. (Jón Þorkelsson):
Út af orðum hins hv. þm. Vestm. (J. M.) vil eg geta þess, að þó að svo geti staðið á, að það sé lítilsvert og jafnvel óviðeigandi fyrir löggjafarþing að samþykkja þingsályktunartillögur, þá er það í slíku stórmáli, sem hér er um að ræða, afarmikilsvert, að alþingi lýsi yfir skoðun sinni og er þá þingsályktunin bezta og ákveðnasta formið.
Hinn sami háttv. þm. fann það að tillögunni, að í henni væri vitnað í bók (Alþingistíðindin 1871), en það er að eins gert til hægðarauka. Mér varð leit úr því að finna mótmælin í alþingistíðindunum og þess vegna tók eg upp tilvitnunina, svo að hver sem vildi gæti fundið þau og lesið. Tilvitnunin ætla eg því að sé til bóta, en ekki baga.
Eg hygg, að háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) hafi getið nokkuð rétt til um, hver væri tilgangur dagskrárinnar og vona eg að hún verði feld.