05.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2103 í B-deild Alþingistíðinda. (2589)

124. mál, stöðulögin

Sigurður Sigurðsson:

Eg vil að eins leyfa mér að fara fram á það við hina háttv. flutningsm. till., að þeir taki hana út af dagskrá að þessu sinni, því að stjórnarskráin er ennþá ekki afgreidd af þinginu og virðist því heppilegra að bíða með tillöguna, þangað til búið er að samþykkja stjórnarskrárbreytinguna til fullnustu.