02.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2130 í B-deild Alþingistíðinda. (2638)

155. mál, vatnsveitingar o. fl.

Jón Magnússon:

Eg skil ekki, að deildin geti samþykt þessa tillögu, að minsta kosti ekki eins og hún nú er orðuð, því að því er ekki að dreifa, að hægt sé að misskilja orðið réttarfar, og þegar af þeirri ástæðu er tillagan ófær. Þinginu getur ekki verið sama um það, hvort það samþykkir það, sem alls ekki getur staðist.