06.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2141 í B-deild Alþingistíðinda. (2657)
166. mál, skilnaður ríkis og kirkju
Fyrirspyrjandi (Jón Jónsson 1. þm. N.-Múl.):
Eg vil geta þess, að mér þykir svar hæstv. ráðh. (B. J.) hvorki gleðilegt né fullnægjandi. Hann hefði bæði getað og átt að undirbúa málið, en hefir alls ekkert gert. Ástæðurnar; sem hann færir fyrir því, eru ófullnægjandi og hefði hann ekki átt að virða vilja þingsins að vettugi.
Að því er fjárveitinguna snertir, er það ekki nægileg ástæða, að ekkert fé var veitt á fjárlögunum til þess að undirbúa mál þetta.
Í fyrsta lagi kostaði slíkur undirbúningur ekki mikið og í öðru lagi hefði mátt veita fé til hans eftir á. Slíkt er oft gert, þá er um nauðsynlega fjárveitingu er að ræða. Annars var hér ekki um neinn sérstakan kostnað að ræða, að eins nokkur fyrirhöfn fyrir stjórnina að bera málið undir landsmenn, en það var blátt áfram skylda hennar, samkvæmt ályktun alþingis.
Hæstv. ráðh. (B. J.) sagði, að ekki hefði verið bent á neina aðferð til þess að framkvæma mál þetta. En þetta er ekki rétt, því að síðasta þing benti á aðferðina. Það getur verið að hún sé ekki rétt, en eg álít hana rétta. Það á að bera mál þetta undir þjóðina. Stjórnin hefir ekkert gert í máli þessu og er það athugavert fyrir hana að hafa þannig lítilsvirt og traðkað vilja þjóðarinnar. Sá tími mun koma, að þetta verður alvörumál. Landsmenn una því ekki til lengdar, að vilji þeirra sé einkis virtur, hvorki í þessu máli né öðrum málum, hvort sem í hlut á landsstjórnin eða þingmenn þjóðarinnar.