08.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2144 í B-deild Alþingistíðinda. (2695)

Fundalok

Jón Jónsson 1. þm. S.-Múl.:

Með því að vér erum nú að skilja í þetta sinn og ekki víst, eins og hæstvirtur forseti tók fram, að vér hittumst allir hér á næsta þingi, þykir mér hlýða, fyrir hönd flokks míns og væntanlega allra þingmanna, að þakka hæstv. forseta fyrir dugnað hans og drengilega framkomu, og góða samvinnu á þessum tveim þingum, sem hann hefir setið í forsetastóli. Vænti eg, að hv. þm. vilji lýsa samhug sínum með þessu, er eg hefi sagt, með því að standa upp.