06.05.1911
Sameinað þing: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (2734)

141. mál, einkaréttur landssjóðs á aðfluttum vörum

Björn Kristjánsson:

Peningamálanefndin hafði nauman tíma til athugunar í morgun og eg gætti ekki að því, að tillögunni hafði að þessu leyti verið breytt í e. d. Eg vona, að eg geti fyrir hönd meðnefndarmanna minna tekið aftur 1. lið breytingartillögunnar með því skilyrði, að 2. liður verði þá samþyktur.