17.02.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1022 í B-deild Alþingistíðinda. (2738)

Erindi frávikins gæslustjóra

Forseti:

Þrátt fyrir þá miklu virðingu, er eg ber fyrir hv. þm. Borgf., verð eg að halda fast við þann úrskurð minn, að bréf hans verður ekki lesið upp nú. Slík erindi verða að koma fram í þingskapalegu formi. Það verður ekki sagt um þetta bréf, og getur það því eigi orðið lesið upp né rætt hér í dag.