21.02.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í B-deild Alþingistíðinda. (336)
128. mál, fræðsla æskulýðsins
Kr. Daníelsson:
Eg get tekið undir með háttv. 6. kgk. (St. St.), að þess hafi tæpast verið vænst, að gersamleg breyting kæmi fram á fræðslulögunum eftir svo stuttan tíma. Það þarf þó ekki að undra þó að breytingar komi fram, því við því verður að búast, að þær að sjálfsögðu komi fyr eða seinna.
Hin núgildandi fræðslulög eru öll miðuð við það sem er, að engin regluleg unglingafræðsla er til nema á stöku stöðum, þar sem helzt einstakir menn hafa brotist í að koma nokkurri slíkri fræðslu á. Fyrir því hefir verið reynt að draga svo mikið af því, sem heyrir til unglingafræðslu, að barnaskólunum, sem hægt er. Þetta frumvarp fer að því leyti í rétta átt, sem einhverntíma verður að halda í, að koma á unglingakenslu, fræðslu fyrir æskulýðinn á þeim árum, sem hann er móttækilegastur að taka á móti henni með mestum árangri. Eg get ekki séð, að sú breyting, sem hér er farið fram á, miði til þess að drepa eldri fræðslulögin. Hún fer í þessa átt, að dreifa meir en nú úr kenslunni og koma upp unglingaskólum. Unglingaskólarnir, sem til eru, hafa átt erfitt uppdráttar, og hingað til hafa það verið, eins og eg sagði, einstakir menn, sem hafa verið að berjast við að koma þeim upp. Eg lít svo á þetta mál, að það eigi það skilið, að það sé íhugað sem vandlegast og rækilegast og það hygg eg, að þjóðin muni kunna því illa, ef slíkt stórmál væri ekki einu sinni athugað í nefnd. Þarf ekki annað en minna á það atriði, sem háttv. ráðherra mintist á, en það var hinn mikli kostnaður, sem stafað hefir af fræðslulögunum. Kostnaðurinn við fræðslulögin hefir aukið útgjöld sveitarsjóðanna, ekki minna en að fullum fjórðungi til helmings og hefir það ofan á annan kostnaðauka svo sem til vega og síma verið afar tilfinnanlegt, og sízt að furða að alþýðu kæmi vel, ef fundið yrði kostnaðarminna fyrirkomulag.
Það hefir samt tekist furðanlega að koma fræðslulögunum á, og lít eg svo á, að það sé ljós vottur um það, hve alþjóð manna sé það mikið áhugamál að auka sem mest fræðslu barna sinna að auðið er.
Þetta er hið mesta áhugamál og vert þess, að það sé íhugað sem rækilegast og rætt, en til þess mun tækifæri seinna. Eg legg til, að í málið sé sett 5 manna nefnd.