01.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (509)
2. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað
Sigurður Stefánsson:
Það var óþarfi fyrir háttv. 5. konungkjörinn að tala um að hengdi strákinn í Núpinn eða að andaði köldum gusti frá mér um þetta mál.
Mér dettur ekki í hug að neita, að þetta er þarflegt fyrirtæki og eflaust til framfara fyrir Reykjavíkurbæ, en fyrir landið er nytsemi þess óvissari, þó sú hersveit Reykvíkinga,
(L. H. B: ekki nema 5/13 til hér í deildinni.)
sem hér er á þingi, vilji telja mönnum trú um það.
Þingið verður að sníða sér stakk eftir vexti svo sem einstaklingurinn. Og ekki gerir bóndinn allar bætur á jörð sinni á einu ári. Efni hljóta að ráða.
Öðru máli væri að gegna, ef hin háttv. hersveit Reykvíkinga gæti sýnt og sannað, að landsjóður græddi á þessu fyrirtæki. Nú er fjárhagurinn svo bágur, að eg verð að kalla það glannalega fjármálapólitík að demba nú á landsjóð 1,600,000 kr. í beinum útgjöldum og ábyrgðum.