28.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í B-deild Alþingistíðinda. (586)

89. mál, bygging jarða og ábúð

Júlíus Havsteen:

Eg lít svo á að engin vissa sé fyrir því að frumv. þetta verði ekki samþ. í hv. neðri deild.

Eg skildi svo umr. um málið síðast, að hin hv. deild væri einhuga um það að láta frumv. ekki fara frá þinginu að þessu sinni, en það er ekki rétt að eiga það á hættu að það nái samþ. hv. neðri deildar. Það er betra að fella það hér og láta svo neðri deildar þingmenn vita það undir hendinni, hverjar ástæðurnar voru, að frv. var felt.