02.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í B-deild Alþingistíðinda. (710)
46. mál, lækningaleyfi
Júlíus Havsteen:
Hv. 5. kgk. þm. (L. H. B.) taldi frumvarpinu það til gildis að í því væru öll læknamál lögð undir umsjón landlæknis, en eg get ekki séð, að það sé þörf á slíkum lögum. Hann hefir nú alt eftirlit bæði með læknum og skottulæknum hér í þessu landi. Frv. er ekki til nokkurs gagns, af því að það er ekkert í því, sem við höfum ekki nú í löggjöf vorri.