04.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 887 í B-deild Alþingistíðinda. (741)

31. mál, rottueitrun

Steingrímur Jónsson:

Fyrir mitt leyti hefi eg ekkert á móti rökstuddri dagskrá, ef hún er sæmilega orðuð. Tilgangurinn með tillögunni var að eins að fela stjórninni málið, en það má auðvitað líka gera með dagskrá. En eg vil biðja meðnefndarmenn mína að láta álit sitt í ljósi, eg get að eins talað fyrir mig, og vil ekki brjóta bág við þeirra vilja.