05.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (763)
37. mál, breyting á fátækralögum
Framsögumaður (Kristinn Daníelsson):
Eg þarf lítið annað að gera en vísa til nefndarálitsins. Þar er tekið fram það, sem nefndinni þótti athugavert við frumvarpið, sérstaklega að nefndinni þótti ekki 1. gr. þess fallin til þess að verða að lögum. Aðalefni þeirrar greinar er að rýmka um kosningarétt þeirra, sem þiggja af sveit. Nefndin álítur ekki tiltækilegt að gera það á þennan hátt, því að ef slíku væri haldið áfram, mætti vel gera ákvæði stjórnarskrárinnar um þetta efni afllaus með öllu. Meðnefndarmenn mínir vildu helzt láta alt frumvarpið sæta sömu forlögum og fella það í heild sinni. En mér þótti nokkur bót í ákvæðum 2. og 3. greinar, sem lúta að því, að dvalarsveit þurfalings skuli ekki vera skyld að bera þriðjung kostnaðar við dvöl hans á sjúkrahúsi, lengur en 2 mánuði. Ákvæðin miða að því að draga úr hvöt dvalarsveitar til að koma lasburða þurfalingum af höndum sér, og er sá tilgangur góður. Eigi að síður er mér ekki kappsmál að þetta nái fram að ganga. Hitt er öll nefndin sammála um, að 1. gr. eigi að falla, en felum hv. deild á vald, hvað hún vill gera við fr.varpið að öðru leyti.