11.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í B-deild Alþingistíðinda. (854)

72. mál, aukapóstferðir

Kristinn Daníelsson:

Eg stend aðallega upp til þess, að koma fram með þá uppástungu, að máli þessu verði vísað til nefndarinnar, sem hefir áður verið kosin til þess athuga gufuskipaferðir; og í því trausti að mér gefist síðar kostur á að taka til máls um þetta efni, skal eg ekki fjölyrða meira.

Fleiri tóku ekki til máls. Málinu vísað til nefndar þeirrar er uppá var stungið, í einu hljóði.