03.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í B-deild Alþingistíðinda. (976)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Magnús Blöndahl:

Út af ummælum háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) um styrkveitingu til Fiskifélags Íslands, lít eg svo á, að hann álíti, að þar sé um réttmæta tillögu að ræða, og með sérstöku tilliti til þess, að eg muni geta til 3 umræðu komið mér saman við fjárlaganefndina, tek eg þessa tillögu mína aftur að sinni.