10.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 605 í B-deild Alþingistíðinda. (1033)
65. mál, fátækralög
Flutningsm. (Matthías Ólafsson):
Herra forseti! Eg hefi litlu við það að bæta, sem eg sagði við 1. umr. þessa máls. Eg hafði hugsað mér að koma fram með brtill. við þessa umr., en hún er, því miður, ekki komin úr prentsmiðjunni ennþá. Hún fór fram á það, að þurfalingi skuli veitt sjúkrahjálp, sem frumv. ræðir um, hvort sem hann fer á innlent eða útlent sjúkrahús. Eg get raunar ekki skilið annað en þetta liggi í lögunum sjálfum, en eg hefi heyrt þess getið, að stjórnarráðið hafi kveðið upp árskurð í þess konar máli, sem fari í öfuga átt. Þess vegna vil eg með lagaákvði láta girða fyrir þetta því að það er ekki síður nauðsynlegt að sjúklingur verði styrktur, þegar kostnaður hans verður mikið meiri.
Eg mun því koma fram með þessa brtill. við 3. umr. og vona að háttv. deild taki henni vel.