14.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í B-deild Alþingistíðinda. (1042)
65. mál, fátækralög
Flutnm. (Matthías Ólafsson):
Herra forseti! Út af því, að heilbrigðum mönnum sé auðvelt að útvega sér sjúkdómsvottorð, þá vil eg geta þess, að svo er ekki þegar fátækir menn eiga í hlut. En hitt veit eg, að þau hneyksli hafa komið fyrir, að embættismenn hafa fengið vottorð, þótt þeir hafi verið hraustir, til þess að fá lausn frá embætti, og legið svo uppi á landssjóði mörg ár á eftir.