17.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 642 í B-deild Alþingistíðinda. (1089)
76. mál, rithöfundaréttur og prentréttur
Flutningsm. (Bjarni Jónsson):
Við 2. umræðu þessa máls benti einn hv. þm. mér á ýmislegt er breyta þyrfti í þessu frumv. En eg hefi enn ekki getað sannfærst um að þess þyrfti. Eg hefi borið þetta undir glöggvan og góðan lögfræðing og hann segir að frumv. komi ekki í bága við nein gildandi lög. Eg vona þvi að deildin lofi frumv. að halda áfram.